Rekstur Golfklúbbsins Odds gekk vel á árinu 2024. Fjölgun félaga, sérstaklega í Ljúflingsaðild og auknar tekjur af æfingasvæði og Ljúflingi lögðu grunn að góðu ári.
Tekjur á árinu 2024 voru 338,4 mkr. samanborið við 310,1 mkr. árinu áður. Gjöld voru 307,2 mkr. samanborið við 302,5 mkr. á árinu 2023. Hagnaður fyrir afskriftir og fjármagnsliði (EBITDA) var 31,2 mkr. sem er töluvert betri afkoma en á síðasta ári.
Niðurstaða ársins er hagnaður upp á rúmar 20,2 mkr.
Hér fyrir neðan má svo nálgast kynningu á ársreikningi aðalfundar GO 2024, sem og ársreikninginn sjálfan.
REKSTRARREIKNINGUR EFNAHAGSREIKNINGUR SJÓÐSSTREYMI FJÁRHAGSÁÆTLUN 2023